05.10.2026
Nemendur í enskuáföngunum ENSK2BB05 og ENSK2AB10 eru þessa dagana að lesa bók sem heitir Q&A eftir indverska höfundinn Vikas Swarup. Sagan gerist á Indlandi og veitir nemendum áhugaverða innsýn í menningu sem er töluvert frábrugðin þeirri sem við þekkjum hér á Íslandi. Til að undirbúa nemendur fyrir lesturinn, fengum við góða heimsókn frá indverska sendiráðinu síðastliðinn föstudag, 2. október. Markmiðið með heimsókninni var að gefa nemendum tækifæri til að spyrja ígrundaðra spurninga um bókina, indverska menningu og annað sem hefur vakið forvitni þeirra við lesturinn. Það vildi svo skemmtilega til að heimsóknin var einmitt á afmælisdegi Gandhi svo nemendur fengu einnig fyrirlestur um ævi og störf þess merka manns. Við þökkum sendiherra Indlands á Íslandi, Hr. Shri R. Ravindra, og samstarfsfólki hans, Anisha Tomar og Akash Chahar, kærlega fyrir komuna og fyrir einstaklega fræðandi fyrirlestra og samtal.
27.09.2026
Úrslit í tónverkakeppni Menntaskólans við Hamrahlíð og Beneventumsjóðs liggja fyrir og voru tilkynnt á afmælishátíð skólans laugardaginn 26. september. Sigurvegari keppninnar er Björn Önundur Arnarson fyrir tónverkið Gunnhildur við samnefnt ljóð MH-ingsins Hallgríms Helgasonar. Við óskum Birni Önundi innilega til hamingju og erum spennt að hlýða á kór Menntaskólans við Hamrahlíð frumflytja verkið í nóvember.
27.09.2026
Takk, kæru MH-ingar og aðrir gestir, fyrir komuna í 60 ára afmæli MH á laugardaginn. Það eru forréttindi að fá að taka á móti ykkur öllum og við getum ekki hætt að brosa. Dagskráin sem MH-ingar fyrr og ný buðu okkur upp á var í alla staði frábær og mjög vel sótt. Húsfyllir var af glöðum MH-ingum sem þyrsti í að hitta aðra MH-inga og var mikið um fagnaðarfundi. Takk öll sem komuð fram og gáfuð okkur stórkostlega upplifun á öllum sviðum listarinnar allan daginn. Takk kærlega fyrir frábæran dag.
26.09.2026
Hér má nálgast streymi á frábæra afmælisdagskrá í tilefni 60 ára afmælis MH.
24.09.2026
Í dag, 24. september, eru 60 ár liðin frá því Menntaskólinn við Hamrahlíð var settur í fyrsta skipti af Guðmundi Arnlaugssyni, þáverandi rektor. Af því tilefni verður blásið til afmælisveislu á laugardaginn hér í MH. Húsið verður opnað kl. 10:00 og stendur dagskráin fram eftir kvöldi. Dagskrána í heild sinni má finna hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum tengdum MH.
Við erum mjög spennt að taka á móti öllum.
18.09.2026
Við fengum góða gesti í liðinni viku, en hingað komu alls 58 nemendur og 6 kennarar frá Otemon Gakuin High School í Osaka.
17.09.2026
Það styttist í afmælið okkar sem við ætlum að halda upp á laugardaginn 26. september frá kl. 10 - 23. Dagskráin er aldeilis glæsileg þar sem mikill fjöldi MH-inga er að gefa vinnu sína og koma fram á hinum ýmsu sviðum allan daginn. Dagskránna í heild sinni má sjá hér á síðunni. Endilega skoðið hana vel og takið daginn frá.
16.09.2026
Fyrsta ball skólaársins verður í dag, miðvikudaginn 16. september í Gamla Bíó. Húsið opnar klukkan 22:00, því lokar 23:00 og ballinu lýkur kl. 01:00. Athugið að það er venjulegur skóladagur á morgun og kennsla hefst kl. 8:20 skv. stundaskrá eins og venjulega. Góða skemmtun.
01.09.2026
Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær.
20.08.2026
Laugardaginn 26. september verður mikil hátíð í MH þegar skólinn fagnar 60 ára afmæli. Nemenda- og hollvinasamtök MH hafa stofnað afmælisviðburð sem við hvetjum alla MH-inga til að skrá sig á. Dagskráin er að mótast og má lesa meira um hana á afmælissíðunni.